5.3.2009 | 11:49
Jæja þá
Það er bara komið rúmt ár síðan ég bloggaði síðast, ja hérna. Það er næstum því kominn tími á að taka bleyju af prinsi númer 2! Bara svona að þið haldið að maður liggji ekki í leti, ég er á fullu í fjarnámi í Open University og stefni á loksins á gráðu í tónlist og uppeldisfræði, eftir að hafa verið að leika mér í 10 ár! Er að kenna litlum gríslingum tónlist www.rhythmtime.net og svo að æfa fyrir næsta stykki sem chester operatic society er að setja upp. The Gondoliers eftir Gilbert og Sullivan, rosa flott stykki, er með eitt af aðalhlutverkunum, Casilda fyrir þá sem þekkja. Þannig að það er eiginlega bara brjálað að gera ... var að spá að afskrá þetta blogg hmmmm ????
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.11.2007 | 20:17
"Here you go!"
Við erum að ganga í gegnum alveg yndislegt tímabil með Alexander. Hann er hættur með bleyju .... loksins. 'Eg ákvað að bíða þar til núna þar sem mér fannst hann aldrei almennilega tilbúinn fyrr en nú. Það er sagt að ef þú bíður eftir rétta augnablikinu þá tekur þetta bara nokkra daga!!! Viti menn, ég held það sé bara þónokkuð til í því. Ef ykkur klígjar við pissu- og kúgatali ekki lesa lengra!
Dagur eitt - Sunnudagur. Bleyjan fór af um 10 leytið um morguninn og hann fór í stórustrákanærbuxur, voða spennandi. Um hádegi hafði hann pissað á sig 3svar! Ég fór að veffengja aðferðina mína og fór beint á netið að leita frekari upplýsinga. Jú, best var að bíða þar til þau eru tilbúinn, eins og ég hafði gert, en svo kom aðalatriðið ... þú spyrð ekki hvort hann þurfi að pissa heldur segir honum að hann eigi að fara á koppinn og það á 15 mínúta fresti. 'Eg ákvað þá að hann færi bara alfresco innanhúss og á koppinn eins og fyrr segir á 15 mín fresti, hann pissaði í flest öll skiptin og ef ekki þá sagði ég bara, "ok, ekkert mál, við reynum bara aftur á eftir". Í hvert skipti sem hann pissar spyr ég hann hvort hann hafi fundið fyrir að hann þurfti að pissa. Eftir nokkur skipti af þessari spurningu fór hann að segja "I feel something". Það er með eindæmum hvað hann svarar mér alltaf á ensku þó svo ég spurji á íslensku. Annað sem ég fann á netinu var að verðlauna þau með límmiðum svo þau sjái árangurinn. Við fundum mynd af flugvél með fullt af gluggum og í hvert skipti sem hann pissar í koppinn þá fær hann stjörnulímmiða sem hann setur á flugvélina sína. Þegar myndin er fullgerð förum við í dótabúð og hann fær að velja dót. Ekkert smá spennandi. Hann fór svo út í garð með pabba sínum seinni partinn og það komu 2 slys þó svo að ég kom út á 15 mín fresti og tók hann inn til að setja á koppinn ... ARRGGG. Ég ákvað þá að múta honum (mælt með því hjá sumum foreldrum á netinu) og gaf honum lítinn súkkulaðimola í hvert skipt sem hann pissaði í koppinn. Um kvöldmat var hann farinn að vilja sitja á koppinum til fá súkkulaði. (þetta ætlaði ég ekki að fara út í!!!) Hann fékk svo bleyju áður en hann fór að sofa.
Dagur tvö - Mánudagur. Fór á koppinn á 15 mín fresti til að byrja með og spurði um súkkulaðið sitt í 2 skipti en gleymdi því svo bara þar sem ég beindi athyglinni annað. Þá fór ég smátt og smátt að teygja tímann í hálftíma. Það gekk rosalega vel þar til ég fór í símann og var í símanum í 10 mín og hann pissaði í sig á meðan EN ... það var líka eina slysið í dag!!! Ég meira að segja náði honum áður enn hann ætlaði að fara að kúga í buxurnar. Hann svaf í um klukkustund og var þurr þegar hann vaknaði. Þetta var mikill þolraunadagur en árangursríkur. Honum tókst að klára flugvélamyndina sína og eins og honum var lofað fórum við í dótabúð og hann fékk að velja lítið dót. 'Eg var alveg rosalega stolt af honum því við vorum í burtu í rúman klukkutíma og hann var þurr allan tímann.
Dagur þrjú - Þriðjudagur ... leikskóladagur! Um leið og ég heyrði Alexander vakna fór ég inn til hans til að setja hann á koppinn ... hann segir þá "ohó!, i´ve done a big one!" Hann pissar greinilega um leið og hann vaknar. Við fórum niður og fengum okkur morgnunmat og svo set ég hann á koppinn og hann pissar aftur. Þá hélt ég að það væri óhætt að fara í sturtu þar sem Mark var kominn á fætur. EN ... auðvitað kúgar hann í nærbuxurnar þegar ég er uppi! Hann er ekki alveg að fatta að það á líka að kúga í koppinn. Svo var farið á leikskólann. Þær eru alveg yndislegar stelpurnar á leikskólanum og svo duglegar að halda í þær venjur og hefðir sem foreldrarnir biðja um. Ég hringdi í þær í gær og spurði hvernig best væri að haga þessu ... ekkert mál sögðu þær, við gerum bara eins og þú, á klósettið á hálftíma fresti og hann fær stjörnulímmiða í hvert skipti sem hann pissar/kúgar. Þegar ég kom og sótti hann var hann enn í sömu buxunum! og þær sögðu mér að hann hefði verið rosalega duglegur og þurr í allan dag. Hann hafði farið á klósettið um 10 mín áður en ég kom en hann var orðinn blautur. Ég held samt að það hafi gerst nýlega þar sem það var enginn pissulykt. Ég lét þær vita en við fórum bara heim.
Svo var það nú rétt fyrir kl. 7 í kvöld að hann kemur inn í eldhús til mín og segir "here you go" og réttir mér lítinn brúnan pakka! Hvernig hagar maður sér þegar svona gerist. Sem betur fer var þetta dálítið hart hjá honum. Ég átti svo bátt með mig að halda niðri hlátrinum og grátinum. Ég reyndi að útskýra fyrir honum (reyndar bara í þriðja skiptið) að mamma væri rosalega ánægð ef brúni pakkinn færi í klósettið eins og pissið en leið ef hann færi í nærbuxurnar.
Við höldum bara ótrauð áfram og næstu tvo daga verðum við saman þannig að ég get fylgst með honum. Vona bara að þetta sé rétt það sem sérfræðingarnir segja að þetta taki mjög stuttan tíma ef rétt er að farið og tíminn sé réttur! Vona að þið fylgist spennt með. xxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.10.2007 | 19:44
Gróðursetning og píanó
Við erum búin að vera rosalega dugleg um helgina. Byrjuðum á því að fara í 50 ára brúðkaups afmæli vinafólks okkar á föstudagskvöldið, sem var í rauninni í fyrsta sinn sem við fórum "út á lífið" saman í um heilt ár. Það var rosa stuð en við vorum komin heim um miðnætti, alveg búin á því.
Síðan ákváðum við hjónin í vikunni að það væri komin tími á að fá okkur aftur píanó. Ég þurfti að selja píanóið mitt þegar við vorum í hinu húsinu og hef saknað þess að geta ekki spilað, er ekkert mikil píanisti en þótti alltaf gott að geta glamrað lögin mín. Það vill svo frábærlega til að Amy, sem er besta vinkona mín og eiginlega eina barnapían mín, ætlar ekki að taka píanóið sitt með sér til Belize ... hún er búin að eiga það í ein 35 ár. Það er yndislegt að geta keypt það af henni. Við fengum það afhent í gær (laugardag) og ég er búin að spila á það alveg helling. Mark og Paul (bróðir marks) voru úti að vinna í Landrover-inum og ég bað þá að hlusta eftir hvort spilið heyrðist nokkuð út og prófaði líka að gala (sumir kalla það að syngja) og viti menn, það var bara allt í lagi. Heyrðist mjög lítið út, ég veit samt ekki hvað nágrannarnir þola gólið í mér lengi. Heyrðu Unnur, ef þú lest þetta, ég er með píanóbók frá þér að ég held.
Já, vinafólk okkar Amy og Robin eru að flytja til Belize, mið-Ameríku í apríl og eru að standsetja húsið sitt til að koma því á sölu. Ég á eftir að sakna þeirra gríðarlega, sérstaklega Amyar. Hún er besta vinkona mín og hefur hjálpað mér mikið með strákana. En þar sem Robin er núna hættur að vinna (65) ætla þau að flyja alla leið í náttúruparadísina Beliz. Fyrir mörgum árum gerðu þau eins og við gerðum í gamla húsinu okkar, sameinuðu tvíbýli í einbýli. Nú ætla þau að breyta húsinu aftur í tvíbýli og vonandi selst það fyrr. En allavega, þau þurfa að rýma til í garðinum hjá sér og við grófum upp einar 8 plöntur/tré í dag. þau eru öll búin að vera í garðinum hjá þeim í ein 6-7 ár. Svo fórum við heim og gróðursettum þau í garðinum hjá okkur. Kemur bara þokkalega flott út. Það eru enn tvö stór tré (um 2-3m há) sem við ætlum að athuga hvort byggingarverktakinn getur grafið upp og flutt til okkar. Það yrði alveg æði þar sem garðurinn okkar er bara gras, pallar, lítil blómabeð og möl. (Set kannski inn myndir fljótlega).
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
1.10.2007 | 19:42
Fruss og frí
Alexander var að kyssa mig góða nótt og hefur tekið uppá því að frussa í staðinn fyrir koss. Ætli ég hafi byrjað á þessu ... hmmm. Alla vega, það hefur ýmislegt drifið á daga okkar síðan síðasta blogg. Daníel fer nú í leikskólann á þriðjudögum og líkar bara ágætlega. Er reyndar bara búinn að fara 4 heila daga. Það er alveg ótrúlegt hvað starfsfólkið er duglegt með þessi litlu kríli. Einn daginn kom hann heim með bakkelsi og annan með mynd sem hann hafði "málað" með puttunum. Hann grætur þegar ég fer en þær ná venjulega að róa hann fljótlega. Ég og Alexander förum saman með hann inn í barnaherbergið og leikum smá. Síðan segi ég honum að ég sé að fara, vil ekki fara án þess að hann viti, en þegar ég er komin að hurðinni brest allt í grát. Þetta er kannski erfiðara þar sem hann er bara einn dag í viku? Alexander elskar að fara sína tvo daga á leikskólann og á orðið marga vini þar.
Við fórum í frí í síðustu viku með tengdó og það var bara yndislegt. Við erum búin að bóka sama húsið (holiday cottage) yfir jólinn og ætlum svo heim til Íslands í byrjun janúar. Strákarnir voru í góðum gír og skemmtu sér konunglega. Við gjörsamlega stoppuðum ekki. Fyrsta daginn fórum á flugvélasafn þar sem voru margar stríðsflugvélar. Phil (tengdó) var í bresku sérsveitunum í "gamla" daga og vildi fara en Alexander sem er náttúrlega með algera flugvéladellu var í essinu sínu. Hann fékk að fara inn í flestar flugvélarnar og þyrlurnar. Seinna þann dag fórum við í fjöru og týndu steina og skeljar og bjuggum til sandkastala. Næsta dag var haldið út í skóg. Við fórum í svokallað "Forest activity park" og strákarnir báðir alveg búnir á því þar sem mikið var um klifur. Þetta var yndislegt og einn besti dagur sem við höfum átt sem lítil fjölskylda. 3ja daginn fórum við svo á bóndabýli og fengum að gefa flestöllum dýrum þar. Ég fékk meira að segja að gefa lömbum úr pela. Það var svo endað á að fara í súkkulaðiverksmiðju, borðaði reyndar ekkert mikið af súkkulaði, bara smá. Það besta við þetta frí var að ég þurfti ekkert að hugsa um eða elda kvöldmat! Tengdó sáu um þetta allt saman og var bara meiri háttar.
Uppáhaldsorðið hans Alexanders hefur verið AEROPLANE en núna snýst allt um HOLIDAY! og hann getur ekki beðið eftir að fara aftur í frí með mömmu, pabba og Daníel.
Á morgun er svo hvíld ... fyrir mig allavega. Báðir strákarnir í leikskólanum en ég er með langan lista af því sem ég þarf að gera. Ætti þó að geta gert mest af honum þar sem strákarnir eru ekki með mér.
Set myndir inn á barnaland fljótlega frá september. xxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.8.2007 | 12:49
Veraldarvefurinn
Ekki fara að hafa áhyggjur af mér, ég ætla ekkert að fara að blogga á hverjum degi! Mig langaði bara að skrifa aðeins um veraldarvefinn. Ég fékk msn frá systu áðan þar sem hún sagði að barnaland væri að biðja fólk um að læsa vefum barnanna sinna. Málið er nefnilega það að einhverjir rússnessir perrar eru búnir að setja myndir frá barnalandi inn á einhverja klámvefi. Hreint út sagt ógeðslegt. Það er ekki til nógu mikil refsing fyrir svona fólki sem hefur hreinlega ekki sál (hjarta né haus til að hugsa með). Þetta eru bara alger skrímsli.
Þetta var nú eiginlega 3ja atvikið sem mér blöskraði við í dag. Fyrst í morgun heyrði ég í útvarpinu að hérna í Englandi, ég segi Englandi en auðvitað hafa allir í heiminum aðgang að þessu, væri komin á laggirnar vefsíða/fyrirtæki sem sérhæfði sig í REVENGE! (Hefnd) Gengur út á það að ef þú þarft að hefna þín á einhverjum þá geta þeir gjörsamlega set líf viðkomandi á hausinn með því að feika t.d. email, sms og komast inn á bankareikninga og bankaviðskipti eru sett á hausinn. Gjörsamlega gera viðkomandi gjaldþrota á andlega og veraldlega. Þannig ef þér hefur verið sagt upp í vinnunni eða makinn yfirgefið þig þá geturðu leitað til þeirra til að hefna þín. Hvað er í gangi? 'Eg var mjög hreikin af útvarpskonunni sem sagði að sér dytti ekki til hugar að segja hver linkurinn væri.
Síðan í gærkvöldi var ég að surfa á netinu, bara að skoða allt og ekkert. Hafið þið prófað að google nafnið ykkar??? SCARY, VERY SCARY. Það koma náttúrulega allar bloggfærslur sem hafa nafnið ykkar og svo allt annað sem hefur verið sett á netið. Þetta fannst mér eiginlega dálítið sniðugt því að ég fór að leita af gömlum vinum og komast að alveg helling um þá ... Gamla vinkona á miðtúni í Sandgerði, ef þú lest þetta, mig langar bara að segja þú ert ekkert smá dugleg og aktíf. Rosa stolt af þér. Líka doktorinn og rússnesska sendiráðspían! Þið vitið hvað ég meina.
Í guðanna bænum passið hvað þið eruð að skrifa og hafið tölvuvarnir í lagi. Ó, það er auðvitað komið leyniorð inn á barnaland hjá strákunum. Sendið meil.
Jæja, nóg um þetta ... heyrumst xxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.8.2007 | 11:59
Leikskóli fyrir Daníel
Home Sweet Home for about a month! Mamma (eða farfuglinn eins og hún heitir víst á bloginu) er komin og farin. Takk fyrir yndislegan tíma. Alexander var ekkert sáttur við að fá ekki að fara með í flugvélina ... hann er með algera flugvéladellu.
Daníel fékk að fara inn á ungbarnadeildina í leikskólanum hans Alexanders í morgun. Hann á að byrja á heilum degi í september og verður þá alltaf á þriðjudögum eins og Alexander. Það var alveg yndislegt að fylgjast með honum og interesant hvernig hann er rosalega frakkur. Hann byrjaði strax að leika með allt dótið og var búinn að rífa í hárið á þremur börnum og ryðja restinni úr vegi sínum. Stelpurnar á deildinni sögðu að það væri greinilegt að hann ætti eldri systkin! Ég var alveg sammála því, hann lét við krakkana eins og Alexander lætur við hann. Ég held þær verða bara fegnar að hann verður bara einn dag í viku! En ég sá það líka að það er alveg kominn tími á að hann verði innan um aðra krakka, það verður bara smávandi með brjóstagjöfina.
Áður en ég mætti í morgun hafði ég hugsað að það væri allt í lagi fyrir hann að fá bara brjóst á morgnanna þegar hann vaknar (ég fæ alla vega að liggja í rúminu til 6) og svo á kvöldin áður en Mark fer með hann upp í rúm. Eins og er fær hann líka smá sopa um hádegisbil sem ég ætlaði mér að hætta með núna fljótlega. Þegar stelpurnar á deildinni fóru að spyrja mig hvenær hann fengi svo pela vissi ég eiginlega ekki hvað ég átti að halda. Þá mundi ég eftir því að þegar Alexander byrjaði á sömu deild fékk hann alltaf pela hjá þeim (var ekki með hann á brjósti) yfir daginn, næstum því 200ml. Ég er bara að hugsa um þetta sem er verið að segja við mæður með börn á brjósti, þau hætta bara þegar þau eru tilbúin. Við erum svotil nýlega hætt með næturgjöfina og ég er farin að halda sönsum yfir daginn, en hann leitar alltaf að brjóstinu þegar hann er þreyttur yfir daginn. Ég hef verið að prófa að gefa honum bara smá snarl þegar hann gerir þetta og það virkar alveg ágætlega ... verðum bara að bíða og sjá. Þó svo að hann sé ekki hættur með hádegissopann þegar hann byrjar á leikskólanum þá er þetta nú bara einn dagur í vikunni. Séð frá næringarfræðilegu sjónarhorni getur það nú varla valdið neinum skaða. Það er bara svo miklu auðveldara að vita hvað fer mikið ofan í þau með pelanum.
Daníel er líka rosalega duglegur að borða ávexti og núna, 8 mánaða gamall, borðar hann meira og minna bara það sem er í matinn að hverju sinni. Finnst ekkert betra en að fá að borða sjálfur, helmingurinn fer þó oftast á gólfið!
Children are like farts, you only like your own! Maður getur endalaust talað um þessi skinn.
Þá er litla skinnið sofnað og ég held ég noti bara tímann til að hvíla mig líka. Nágrannar eru að fara að byrja ... helli upp á kaffi ... ah, kíki á ebay. Er að bjóða í legokubba til að geta byggt stærri flugvélar fyrir Alexander og hús fyrir mig ... búið að yfirbjóða mig aftur! Það er alltaf eins og fólk verði að bjóða yfir það sem aðrir eru að bjóða í. Þvílík samkeppnisbræði í fólki. 'Eg tékka alltaf á hvað hlutirnir kosta nýir og síðan tek ég allavega 30% af því verði og ég fer ekki hærra en það fyrir notaða vöru á ebay. Get alveg eins keypt þetta nýtt. Það er alltaf að koma nýtt lego inn á ebay þannig að við bíðum bara og bjóðum í seinna, skynsemin í fyrirrúmi ... ég bíð bara í kaffi núna ef einhver vill. xxx
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.7.2007 | 11:21
Home Sweet Home
Þá erum við lent og komin heim. Strákarnir voru alger æði í flugvélinni og líka svo í nótt, sváfu báðir í sínum herbergjum og Daníel vaknaði ekki nema 2svar. Við fórum til Hönnu Stínu í soðna ýsu í hádeginu áður en við héldum út á flugvöll og það virðist bara hafa komið öllum í þvílíka ró. Takk fyrir það Hanna Stína. Það var rosalega gaman að sjá nýja húsið hennar ... meiriháttar flott.
Við áttu líka alveg yndislegan dag á Sunnudaginn þegar Daníel Magni var skírður. Veðrið lék við okkur og vinir og fjölskylda mættu á svæðið í grill. Við höfðum bara athöfnina úti í garði hjá mömmu og pabba. Takk fyrir allir saman fyrir hann Daníel okkar.
Núna er ég ein heima með Daníel þar sem Alexander fór á leikskólan, ekki alveg sáttur, og Mark fór í vinnu. Það er svosem ágæt að vera svona ein. Nenni samt eiginlega ekkert að byrja að taka upp úr töskum. Eftir að ég keyrði Mark í vinna fór ég og hitti Amy vinkonu mína á Neros (kaffihúsið okkar sem við förum ALLTAF á) niðri í bæ. Síðan var Daníel ekkert hress með að vera á ferðinni þannig að ég dreif mig bara heim með hann, gaf honum að borða og hann er sofandi núna. Það væri náttúrulega skynsamlegt að leggja sig aðeins til að hafa orku í Alexander þegar hann kemur heim seinni partinn ... en ég hef aldrei verið skynsöm að þvíleitinu til.
Hmm ... það er að mér sýnist að flytja nýtt fólk í götuna. Við búum í botninum á götunni og ég sé allt sem er að gerast, frábært því ég er svo forvitin. Núna voru gluggaþvottakarlarnir mínir að koma og sækja pening hjá mér, þeir þrifu víst gluggana meðan ég var í burtu. Það er alveg frábært að vera með svoleiðist kalla (reyndar feðgar, kall og ungur strákur). Það er ekkert auðvelt að komast upp á efri hæðina til að þrífa gluggana. Já, nýir nágrannar í númer 15. (það eru bara 22 hús í götunni) Númer 13 og 15 eru búin að vera á sölu í um ár að ég held, 13 var tekið alveg í gegn og er líka núna nýbúið að seljast. 'Eg er að vona að það komi fleirra barnafólk hingað. Það eru nú reyndar 2 krakkar 4ja og 6 að ég held en þau eru aldrei að leika úti á götunni. Svo eru 2 ömmu og afa hús í götunni sem lifna við um helgar!
Jæja, ég held ég þurfi annan kaffibolla til að koma mér af stað ... ætla að leifa Daníel að sofa og síðan fara að versla.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
7.7.2007 | 21:00
Karlinn komin
Ekki er nóg með alla spennuna sem fylgir því að Inga systir var að koma heldur kom Mark minn í gærkveldi líka. Það er yndislegt að fylgjast með því hvernig Alexander hagar sér. Ég er búin að vera á flakki með strákana dálítið á þessu ári, fórum fyrst til Danmerkur, síðan Spánar og nú á Íslandi. Það gerist alltaf á 4-5 degi að Alexander verður rosalega eirðarlaus og er alltaf með meiddi. Ég er alveg búin að fatta það að hann er að sakna pabba síns, hann er alger pabbastrákur. Svo er Mark kominn núna og hann er alveg eins og engill, já englill, hmmm engill með lítil horn og hala eftir því hvort búið sé að fara í þetta frábæra mosfellsbakarí. (Önnur ástæða fyrir því að búa ekki hérna, íslenskt bakkelsi er æði). Það var ótrúlegt hvernig bæði Alexander og Auður höguðu sér eftir ferð á kaffihúsið í bakaríinu, Alexander fékk kókómjólk og kanilskonsu og Auður svala og snúð. Svo fórum við inn í búð við hliðina til að skoða Henson galla og þau gjörsamlega urðu eins og bavíanar.
Heyrðu, þarf að fara keyra brósa út á lífið ... skrifa meira seinna xxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.7.2007 | 23:05
tími til komin að segja frá
Þá erum við strákarnir komin heim til Íslands. Ég er ekki búin að blogga eða segja frá því að við erum hér því mig langaði að koma Ingu systir á óvart. Þau eru að lenda á keflavíkurflugvelli núna og er pabbi að sækja. Við erum svo sem búin að standa á haus alla síðustu viku í að gera og græja íbúðina fyrir Ingu og Friðþjóf. Þannig er mál með vexti (mörg ykkar vita) að Inga systir tæknifræðingsfrú og Friðþjófur eru að flytja heim frá Óðinsvé. Friðþjófur er búinn með skólann og orðinn rafmagnstæknifræðingur. Þau fólu pabba það verkefni að kaupa eitt stykki hús fyrir sig sem og hann gerði. Þau eru svo að koma í kvöld en halda að ekkert sé búið að gera í íbúðinni og halda að þau komi upp í mosó og verði hjá mömmu og pabba þar til búið er að standsétja íbúðina. Nú auðvitað ákváðum við að koma þeim á óvart og það er búið að skúra, skrúbba og bóna (jú og mála) og þau fara beint í sitt eigið. Í dag er búið að vera þvílíkur stressdagur og greyið strákarnir mínir alveg búnir á því (ég eiginlega líka). Auður, mamma Friðþjófs, kom og tók til þrifnaðarhendi í íbúðinni ... ekkert smá dugleg.
Æi Þetta er bara búið að vera fyndið, í hvert skipti sem mömmu sími hringir, þarf hún alltaf að hlaupa í burtu því ekki má Inga heyra í strákunum þegar mamma er í símanum. Ég bjallaði svo í Ingu til að óska henni góðrar ferðar ... hún var alveg að farast úr stressi að ferðast með stelpurnar. Friðþjófur þurfti að vera eftir í Óðinsvé til að ganga frá sölunni á bílnum og ég held hann hafi rétt náð á tíma í innritun á Kastrup. Ég gat nú ekki annað en hlegið þegar hún spurði mig hvað maður gæti gengið langt á 45 mín. Já, Friðþjófur ætlaði eina 14 km. Hmmmm, ég sagði nú bara að láta hringja á leigubíl.
Enn allavega, mamma og Auður eru uppi í íbúð núna að klára og ég heima með strákana. Ég sit þó ekki alveg aðgerðarlaus því að ég er búin að ná í Hjört Magna fríkirkjuprest í dag og hann er til í að skíra Daníel 15. júlí. Við vorum ekki viss hvort við gætum skírt í þessari Íslandsreisu okkar en það ætlar að hafast ... heyrðu ... hvað gerðist 15. júlí í fyrra? Í þetta sinn verður það bara skírn! Ætli hann passi í skírnarkjólinn?
Alexander er alveg að deyja úr spennu yfir því að fá að hitta Auði frænku sína á morgun ... Ætli ég hringi á undan mér ... hmm. Jú ég hringi og spyr hvernig ferðin gekk og hvort hún sé búin að hella uppá fyrir mig ... segi ykkur hvernig gekk ... Bless i bili xxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
27.6.2007 | 20:59
Nýjar júnímyndir á barnalandi
Mig langaði bara að segja ykkur að ég var að setja nýjar myndir inn á barnaland. www.barnaland.is/barn/46130 Fullt af myndum frá júnímánuði, já og líka smá vefbókarfærsla. Blogga meira fljótlega ... er á fullu að græa og gera fyrir leyndarmál! Já, ég á líka lítið leyndarmál, sem ekki má segja frá alveg strax. xxx
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)


ingadogg
gudrungudmunda
jorunn
laugheidur1
asdig
unnurgudrun